| Sigurbjorg Katr...'s profileSilla KataPhotosBlogLists | Help |
Silla Katahttp://spaces.msn.com/members/sillakata/ 6/18/2007 Smá grillKiddi, Billabong og Eyrún komu og það var smá grill í síðustu viku og Vala myndasmiðurinn okkar tók nokkrar myndir sem ég var að setja inn. Eyrún er nú eiginlega búin að sprengja utan af sér kápuna. Lítið blogg en betra en ekkert. 1/5/2007 Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla!Já áramótin voru líka æðisleg, sama fólkið nema nú bættist Eyrún kærasta Brynjars við, það var gaman að hún skyldi koma. Við vorum með hefðbundinn matseðil, þ.e. FONDU, nema nú var ekki nautakjöt eins og venjulega heldur var: lamb, dádýr og kengúra!!!!!! Æðislega gott og svo fullt af allskonar grænmeti því Eyrún er grænmetisæta. Skaupið var DREP-leiðinlegt. Setti inn smá myndir frá áramótunum. 12/28/2006 Jólin 2006Jólin voru yndileg, vantaði bara Andra minn, setti inn nokkrar myndir. Gleðileg jól allir. 8/20/2006 Endir á Paradís!Já nú er sumarfíið búið, þetta er búið að vera yndilegur tími, Danmörk stendur upp úr. Síðan bara hvíld og svoleiðis og síðustu 2 vikur er ég eins og ég á að mér. En maður er aldrei lengi í Paradís. Á morgun byrjar hversdagsleikinn aftur. Vinna, þreytt, sofa.Vinna, þreytt, sofa.Vinna, þreytt, sofa. En svo venst maður því eins og öllu. 8/11/2006 SumarfríEr auðvitað löngu komin heim. Það var alveg frábært í Danmörku, maður lifir lengi á þessu. Síðan er ég bara búin að hanga heima í sumarfríi, sem er alveg eins og ég vildi hafa það. Það er svo sjaldan sem hægt er að hanga á náttfötunum allan daginn og t.d. lesa bækur og svoleiðis og bara hanga með stelpunum. En allt tekur enda bara ein vika eftir. 7/25/2006 I Danmørku!Thetta er buid ad vera aldeilis frabært her. Komum fyrst til Ålaborgar og vorum thar eina nott. Buum i skola her i Hjørring og thetta er otrulega stort og flott mot. Vedrid er buid ad leika vid okkur, sol og ca 24 stiga hiti. Thær eru bunar ad keppa 3 leiki, 2 sem endudu i jafntefli og einn i tapi. Vid erum buin ad ad fara i Sømmerland, sem er vatnsrennibrautir og tivoli, thar eyddum vid heilum degi og eg for audvitad i russibanann! Ekkert sma gaman. I dag var verslad "sma" thad er ad segja stelpurnar, eg hef litid komist i thad enntha. En vid erum allar bunar i fotunum, med blødrur og allar aumar. Svolitid asnalegt ad skrifa a thetta lyklabord vantar islensku stafina. Bid ad heilsa øllum, gaman ad fa kvedjur a foreldrasidunni. 7/19/2006 Danmörk nálgast! Áfram ÍR!Já nú er kelljan bara komin í sumarfrí og þetta líka fína veður. Fer með fótboltastelpurnar í 4.fl. ÍR til Danmerkur á laugardaginn 22. júlí og komum aftur laugardaginn 29.júlí. Við gistum fyrstu nóttina í Álaborg en förum síðan til Hjörring. Það eru bara ca 3 leikir á dag svo ætlunin er að leika sér í vatnsrennibrautum og tívolí og svo það sem stelpurnar erumest spenntar fyirr: að versla. ÉG LÍKA! Svo ef veðrið verður gott eru bestu strandir Danmörku bara í 15 mín fjarlægð. Við reynum að komast í tölvu daglega og skrifum þá smá smá pistil um hvað við gerum eða gerðum þann daginn. Það er þessi heimasíða: http://www.blog.central.is/foreldrar Hún er líka hér á síðunni hjá mér undir ÍR síðan. 6/20/2006 Garðsláttur.Það tókst loksins að gera við eina sláttuvélina og þetta líka fínu vél og búið að slá garðinn. Enginn hryllingsgarður lengur! 6/18/2006 3 af 4 komin!Já bara búin að vera vinna og vinna, allir í sumarfríi svo það er mikið að gera í vinnunni.
Nú eru þau komin frá Bandaríkjunum nema Lára, hún kemur á fimmtudaginn. Birkir og Sylvía komu á laugardagsmorgun en Inga kom í morgun. Silvía talar ekki ennþá íslensku en skilur hana alveg, en það er stutt í að hún fari að tala aftur. Við tölum við hana á íslensu og hún svarar á ensku.
Úff hræðilegt að sjá garðinn hér, algjör hryllingsgarður af ofvöxnum bifukollum! Ég held ég hafi aldrei séð svona mikið af "fíflum" í neinum garði. Og 3 bilaðar sláttuvélar, en Runóflur er að reyna að gera við einhverja af þeim svo hægt verði að slá. Vonandi. 6/12/2006 Systrahelgin 9-11 júní 2006Já hún rann loksins upp, helgin sem systurnar voru búnar að bíða svo lengi eftir. Silla hætti snemma í vinnunni milli kl. 13-14 og Inga systir náði í hana. Þær ætluðu sko að leggja senmma af stað, áttu að vera mættar í mat um kvöldið. En þær þurftu að skreppa hingað og þangað eins og gengur og gerist, keyptu að ég held níu luktir, eins gott ef það skyldi nú vera dimmt þarna á hjara veraldar. Og ýmilegt var keypt til að troða í mallann. Loksins fóru þær úr bænum og brunuðu af stað á fína bílnum hennar Ingu. Ferðin gekk mjög vel. Í mjög stuttan tíma. Því ég held það sjáist ennþá bremsuförin á Selfossi þegar systurnar sáu gamlkunnugt merki á einu húsinu þar. ZikZak. |
|
|||||||
|
|